Rekstrardeild
Rekstrardeild er stoðdeild innan Félagsþjónustu Kópavogs og hefur með að gera fjárhagslega umsýslu og bókhald fyrir aðrar deildir Félagsþjónustunnar.
Rekstrardeild annast útreikning bótafjárhæða og greiðslu bóta í samræmi við samþykktir fjölskyldudeildar og félagsmálaráðs og innheimtir tekjur og þáttökugjöld. Jafnframt annast deildin alla almenna afgreiðslu, ritaraþjónustu, símaþjónustu og skýrslugerð auk umsjónar með tölvu- og hugbúnaðarmálum stofnunarinnar. Rekstrardeild sér um almennan rekstur á Fannborg 4 svo sem ræstingu, innkaup rekstrarvara og annarra vara sem þörf er á hjá stofnuninni.
Rekstrardeild sér um útgreiðslu fjárhagsaðstoðar og húsaleigubóta.
Starfsmenn rekstrardeildar eru:
- Atli Sturluson, yfirmaður rekstrardeildar
- Júlía Isaksen, gjaldkeri og rekstrarfulltrúi
- Hrefna Hilmisdóttir, rekstrarfulltrúi
- Guðrún Garðarsdóttir, ritari
- Svala Erlendsdóttir, afgreiðslufulltrúi
- Guðrún Hrefna Elliðadóttir, rekstrarfulltrúi
- Guðný Stefnisdóttir, afgreiðslufulltrúi í sumarafleysingu
