Þjónustudeild aldraðra
Þjónustudeild aldraðra
Þjónustudeild aldraðra er staðsett í Fannborg 4. Yfirmaður deildarinnar er Svanhildur Þengilsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Viðtalstímar eru gefnir eftir þörfum og samkomulagi í síma 570-1500. Hægt er að senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið svanhildur@kopavogur.is
Helstu verkefni deildarinnar eru:
-
Félagsleg heimaþjónusta
-
Hjúkrunarheimili
-
Dagþjálfun
-
Matarþjónusta
-
Vistunarmat aldraðra
-
Þátttaka í úthlutun leiguíbúða bæjarsjóðs
-
Upplýsingar og ráðgjöf um öldrunarmál
-
Samstarf við ýmsa aðila, s.s. heilbrigðisstofnanir og félagasamtök
Unnið er samkvæmt lögum um málefni aldraðra og lögum um félagslega þjónustu sveitarfélaga að málefnum er lúta að úrræðum fyrir aldraða. Yfirmaður öldrunarþjónustu hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd öldrunarþjónustunnar á vegum félagsþjónustu Kópavogs.
