Nýframkvæmdir
Fasteignir - Nýbyggingar
Framkvæmdir við nýbyggingar eru á ábyrgð framkvæmdadeildar. Framkvæmdadeild annast útboð gerð verksamninga og eftirlit með nýbyggingaframkvæmdum. Ábyrgðarmaður á framkvæmdum við nýframkvæmdir er Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri.
Gatnagerð - Nýframkvæmdir
Framkvæmdir við gatnagerð eru, í allflestum tilfellum, á vegum verktaka sem Kópavogsbær hefur gert verksamning við. Framkvæmdadeild mun halda excel lista yfir helstu nýframkvæmdir sem eru í vinnslu hverju sinni. Sá listi mun vera þjónustuborði aðgengilegur í gegnum One systems. Á umræddum lista verður tilgreindur áætlaður framkvæmdartími og hver sé eftirlitsaðili með framkvæmdinni fyrir hönd Framkvæmdadeildar. Ábyrgðarmaður vegna framkvæmda við gatnagerð er Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri Framkvæmdadeildar. Allt viðhald og umhirða gatna er á hendi Áhaldahúss Kópavogs, ábyrgðaraðili er Jóhannes Pétusson.

