Veitur
  • stodvarhus

Veitur

Til veituframkvæmda heyra framkvæmdir við vatnsveitu, fráveitu, hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagnir.

Framkvæmdir við vatnsveitu eru alfarið á vegum Kópavogsbæjar. Framkvæmdir Vatnsveitu Kópavogs (VK) eru almennt unnar samhliða gatnagerð af verktökum undir eftirliti VK. Vatnsöflun og stofnlagnir frá Vatnsendakrika eru á ábyrgð VK. VK sér um allt viðhald á brunnsvæðum, stofnlögnum og dreifilögnum. Heimtaugar VK í ný hús lagðar samhliða lagningu fjarskiptaheimtug og hitaveitu og skulu umsóknir um heimtaug berast til Orkuveitu Reykjavíkur. VK er með skrifstofu í Áhaldahúsi og er Jón Auðunsson vatnsveitustjóri.

Fráveita

Framkvæmdir við fráveitu eru alfarið á vegum Kópavogsbæjar og eru almennt unnar samhliða gatnagerð undir eftirliti Framkvæmdadeildar. Viðhald fráveitulagna og umhirða er á hendi Áhaldahúss Kópavogs, ábm Jóhannes Pétursson, sími: 570-1660. Bilanavakt tekur á móti tilkynningum um bilanir á gatna- og veitukerfi og liðsinnir bæjarbúum utan venjulegs opnunartíma. Sími bilanavaktar er 892-8215. Tengiliður er Árni Björnsson, verkstjóri. S. 570-1663 / 896-1920.

Hitaveita

Framkvæmdir hitaveitu eru unnar á vegum Orkuveitu Reykjavíkur og eru almennt unnar samhliða gatnagerð undir eftirliti OR. Viðhald hitaveitu er á hendi OR. Framkvæmdir við hitaveitu og rafveitu eru á vegum Orkuveitu Reykjavíkur, s: 516-6000.

Rafveita

Framkvæmdir rafveitu eru unnar á vegum Orkuveitu Reykjavíkur og eru almennt unnar samhliða gatnagerð undir eftirliti OR. Viðhald rafveitu eru á hendi OR.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica