Grunnskóladeild

Grunnskóladeild

Hlutverk grunnskóladeildar er að veita grunnskólum Kópavogs faglega og rekstrarlega ráðgjöf og vinna að málefnum þeirra í umboði bæjaryfirvalda og samkvæmt stefnu þeirra.

Grunnskóladeild kappkostar að þróa starfsumhverfi skólanna með þeim hætti að það veiti þeim sem mest faglegt og rekstrarlegt svigrúm.

Grunnskóladeild hefur eftirlit með að skólarnir starfi samkvæmt lögum um grunnskóla, aðalnámskrá og samþykktum sveitarstjórnar. Grunnskóladeild vinnur að verkefnum sínum í náinni samvinnu við stjórnendur skólanna og skólanefnd ásamt því að tryggja  skólunum ráðgjöf og aðstæður til skipulagningar lögbundinnar sérfræðiþjónustu.

Á grunnskóladeild skulu starfa sérfræðingar sem hafa faglega þekkingu til að veita skólunum þá ráðgjöf sem kveðið er á um í lögum og reglugerðum.

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica