Leikskóladeild
Leikskóladeild
- Sesselja Hauksdóttir, deildarstjóri. Hún er yfirmaður leikskóladeildar Kópavogs. Leikskólafulltrúi hefur yfirumsjón með rekstri og uppeldisstarfi leikskólanna. Hann er tengiliður á milli leikskólanna og bæjaryfirvalda. Leikskólafulltrúi er næsti yfirmaður leikskólastjóra. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
- Emilía Júlíusdóttir, dagvistarfulltrúi. Meginverkefni daggæsluráðgjafa er að halda utan um allt er tengist dagforeldrum, leyfisveitingum, eftirliti og ráðgjöf. Hún svarar fyrirspurnum og sér um leikfangasafn fyrir dagforeldra. Emilía sér einnig um málefni gæsluleikvalla. Viðtalstímar eru eftir samkomulagi.
- Gerður Guðmundsdóttir, leikskólaráðgjafi. Meginverkefni leikskólaráðgjafa er að vera leikskólastjórum og öðrum starfsmönnum til ráðgjafar um fagleg málefni. Að vera ráðgefandi varðandi starfsmannamál, þróunarverkefni, foreldrasamstarf og miðla þekkingu á nýjungum á sviði leikskólafræða. Gerður hefur umsjón með fagbókasafni og endurmenntun. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
- Sigurlaug Bjarnadóttir, leikskólaráðgjafi. Meginverkefni leikskólaráðgjafa er að vera leikskólastjórum og öðrum starfsmönnum til ráðgjafar um fagleg málefni. Einnig að vera ráðgefandi varðandi starfsmannamál, þróunarverkefni, foreldrasamstarf og miðla þekkingu á nýjungum á sviði leikskólafræða. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
- Anna Karen Ásgeirsdóttir, sérkennslufulltrúi. Meginverkefni sérkennslufulltrúa er að vera yfirmaður stoðþjónustu í leikskólum Kópavogs. Hún hefur einnig umsjón með úthlutun sérkennslutíma til leikskóla, veitir starfsmönnum leikskóla og foreldrum ráðgjöf og fræðslu vegna barna með sérþarfir. Sér um samskipti við þá sérfræðinga er starfa við leikskóla Kópavogs og hefur yfirumsjón með sérkennslusafni. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
- Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir, sérkennsluráðgjafi. Meginverkefni sérkennsluráðgjafa er að hafa yfirumsjón með sérkennsluráðgjöf vegna barna með einhverfu. ún veitir starfsmönnum leikskóla og foreldrum ráðgjöf og fræðslu vegna barna með einhverfu. ún sér einnig um samskipti við þá sérfræðinga er starfa með börnum og foreldrum einhverfra barna. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
