Menntasvið
Menntasvið Kópavogsbæjar ber ábyrgð á rekstri og/eða eftirliti með faglegu starfi grunnskóla, leikskóla og tónlistarnáms auk sérúrræða fyrir grunnskóla. Þá annast sviðið eftirlit með þjónustureknum leikskólum.
Auk þess ber sviðið ábyrgð á rekstri og/eða eftirliti með með faglegu starfi sumarnámskeiða fyrir börn, félagsmiðstöðva fyrir unglinga, ungmennahúss, fullorðinsfræðslu, félagsmiðstöðva fyrir eldri borgara og frístundaúrræða fyrir fatlaða einstaklinga.
Jafnframt ber sviðið ábyrgð á rekstri og eftirliti með sundlaugum og öðrum íþróttamannvirkjum, svo sem íþróttahúsum, íþróttavöllum og golfvelli. Einnig má nefna umsjón með skíðaaðstöðu, reiðaðstöðu og siglingaaðstöðu.
Menntasvið skiptist í fjórar deildir: Grunnskóladeild, leikskóladeild, frístunda - og forvarnadeild og íþróttadeild.
Á menntasviði starfa eftirtaldir starfsmenn:
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðsstjóri
Almenn skrifstofa, rekstrardeild:
- Sindri Sveinsson, deildarstjóri
- Jófríður Hanna Sigfúsdóttir, launafulltrúi
- Valdimar Valdimarsson,launafulltrúi
- Hanna Sigríður Sigurðardóttir, innritunarfulltrúi
- Sigrún Alda Michaelsdóttir, ritari
- Guðlaug Helga Hálfdanardóttir, rekstrarfulltrúi
Grunnskóladeild:
- Ragnheiður Hermannsdóttir, deildarstjóri
- Hannes Sveinbjörnsson, eftirlits- og kennslufulltrúi
- Tómas Jónsson, sérfræðiþjónustufulltrúi
Leikskóladeild:
- Sesselja Hauksdóttir, deildarstjóri
- Emilía Júlíusdóttir, dagvistarfulltrúi
- Gerður Guðmundsdóttir, leikskólaráðgjafi
- Sigurlaug Bjarnadóttir, leikskólaráðgjafi
- Anna Karen Ásgeirsdóttir, sérkennslufulltrúi
- Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir, sérkennsluráðgjafi
Frístunda- og forvarnardeild:
- Linda Udengaard, deildarstjóri
- Arna Margrét Erlingsdóttir, verkefnastjóri
Íþróttadeild:
- Jón Júlíusson, deildarstjóri
- Gunnar Guðmundsson, verkefnastjóri
