Íþróttadeild
Hlutverk Íþróttadeildar er að vinna að íþróttamálum í umboði bæjaryfirvalda og samkvæmt stefnu þeirra. Íþróttadeild vinnur að verkefnum sínum í náinni samvinnu við forsvarsmenn íþróttafélaga, forstöðumenn stofnana og íþróttaráð.
Íþróttadeild leitast við að gera bæjarbúum kleift að stunda íþróttastarf við hæfi með það að markmiði að ástundun íþrótta séu ávallt fyrsti valkostur í frítíma þeirra.
Íþróttadeild kappkostar að veita ráðgjöf við að þróa starfsumhverfi íþróttafélaga og annarra félagasamtaka til aukinnar og hollrar hreyfingar bæjarbúa.
Íþróttadeild hefur eftirlit með starfsemi félaganna í bænum og að þau veiti bæði skilvirka og viðeigandi þjónustu á sínum vegum.
Á Íþróttadeild starfa sérfræðingar sem veita faglegar upplýsingar um helstu nýjungar til bættrar aðstöðu til íþróttaiðkunnar
Jón Júlíusson, deildarstjóri.
Gunnar Guðmundsson, íþróttafulltrúi.
