Byggingarmál
Aðsetur: Fannborg 6, 2. hæð
Sími: 570-1500
Fax: 570-1451
Skrifstofa skipulags- og umhverfissviðs er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 8:00 – 16:00 og föstudaga kl. 8:00 – 15:00. Skiptiborðið er í Þjónustuveri Kópavogs að Fannborg 2.
Netfang fyrir fyrirspurnir og ábendingar: byggingar(hjá)kopavogur.is
Netfang fyrir skráningartöflur: skraningartoflur(hjá)kopavogur.is
Viðtalstímar- og símatímar byggingarfulltrúa eru á skrifstofutíma.
Starfsmenn embættis byggingarfulltrúa og meginverkefni þeirra:
Gísli Norðdahl er byggingarfulltrúi. Hann annast yfirferð byggingarleyfisumsókna og sér um útgáfu byggingarleyfa og sér auk þess um yfirstjórn embættisins auk hefur einnig umsjón með uppáskriftum byggingarstjóra.
Guðrún Hauksdóttir er fulltrúi á skrifstofu byggingarfulltrúa. Hún hefur umsjón með innsendum byggingarleyfisumsóknum og afgreiðslum þeirra auk þess að hafa umsjón með skjalasafni og daglega stjórn á skrifstofuhaldi.
Einar Sigurðsson er tæknifræðingur á skrifstofu byggingarfulltrúa. Hann er aðstoðarmaður og staðgengill byggingarfulltrúa og hefur einnig umsjón með séruppdráttum. Sér um byggingareftirlit,úttektir, fokheldis-, öryggis- og lokaúttektir.
Anna Þ. Gísladóttir er verkfræðingur á skrifstofu byggingarfulltrúa. Hún sér um fasteignaskráningu, annast samskipti við Fasteignaskrá (Þjóðskrá Íslands) varðandi fasteignaskráningu og sér um álagningu fasteignagjalda og upplýsingagjöf þar að lútandi. Hún hefur einnig umsjón með yfirferð eignaskiptayfirlýsinga.
