Byggingaleyfi

Byggingaleyfi

Byggingaleyfi

Óheimilt er að grafa grunn, reisa hús, rífa hús, breyta því að innan og utan, burðarkerfi þess, formi, svipmóti eða notkun þess eða gera önnur þau mannvirki sem falla undir ákvæði skipulags- og byggingarlaga nema að fengnu leyfi byggingarnefndar.

Sá sem óskar byggingarleyfis skal senda um það skriflega umsókn til byggingarnefndar ásamt nauðsynlegum hönnunargögnum og skilríkjum.
Byggingarleyfi er gefið út þegar bæjarstjórn hefur staðfest samþykkt byggingarnefndar og álögð gjöld hafa verið greidd eða samið um greiðslu þeirra.

Byggingarleyfi fellur úr gildi hafi byggingarframkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá útgáfu þess eða innan 12 mánaða frá staðfestingu bæjarstjórnar.

Nágrannakynning
Þegar sótt er um leyfi í þegar byggðu hverfi og deiliskipulag liggur ekki fyrir skal byggingarnefnd senda málið til skipulagsnefndar, sem fjallar um málið og lætur fara fram grenndarkynningu áður en það hlýtur afgreiðslu byggingarnefndar. Nágrannakynning felst í því að nágrönnum, sem hagsmuna eiga að gæta, er kynnt málið og gefinn kostur á að tjá sig innan ákveðins frests sem skal vera a.m.k. 4 vikur. Að þeim fresti liðnum og þegar niðurstaða skipulagsnefndar liggur fyrir skal byggingarnefnd taka málið til afgreiðslu. Þeim sem tjáðu sig um málið skal tilkynnt um niðurstöðu skipulagsnefndar og byggingarnefndar.

Gjöld
Við samþykkt byggingarleyfis, bæði nýbyggingar og viðbyggingar, eru lögð á ýmis gjöld samkvæmt gjaldskrá og eru þau eftir atvikum gatnagerðagjöld, byggingarleyfisgjöld, heimæðagjöld vatnsveitu, heimæðagjöld frárennslis, mælingargjöld, úttektargjöld og gjöld fyrir fokheldisvottorð og lokaúttektarvottorð.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica