Stjórnsýslusvið
Hlutverk stjórnsýslusviðs Kópavogsbæjar er að vinna fyrir bæjarbúa og með öðrum starfsmönnum að því að veita skilvirka og viðeigandi þjónustu. Þá sér sviðið til þess að ávallt séu fyrirliggjandi réttar fjárhagslegar og stjórnunarlegar upplýsingar til undirbúnings ákvarðanatöku hjá Kópavogsbæ.
Bæjarritari er Páll Magnússon.
Bæjarritari er framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs. Hann samræmir og hefur með höndum stjórn á starfsemi er undir það svið heyrir svo sem fjármál, starfsmannamál, upplýsinga- og kynningarmál, tölvumál, skjalavörslu auk annarra starfsþátta bæjarskrifstofu.
Bæjarritari er ritari bæjarráðs og bæjarstjórnar ásamt því að vera staðgengill bæjarstjóra í fjarveru hins síðarnefnda.
Undir stjórnsýslusvið heyra:
- Almenn skrifstofa; skrifstofustjóri er Sigurður Björnsson
- Fjármáladeild; fjármála- og hagsýslustjóri er Ingólfur Arnarson
- Lögfræðideild; bæjarlögmaður er Pálmi Þór Másson
- Starfsmannadeild; starfsmannastjóri er Þorsteinn Einarsson
- Upplýsingatæknideild; forstöðumaður er Ingimar Þór Friðriksson
- Gæðamál: gæðastjóri er Árni Þór Hilmarsson
- Menningar- og þróunardeild; deildarstjóri er Arna Schram sem jafnframt er upplýsingafulltrúi.
Á skrifstofu bæjarstjóra starfa:
- Brynja Harðardóttir, ritari.
- Elísabet Þórisdóttir, ritari.
