Vinnuskóli
Undanfarna áratugi hefur Kópavogsbær boðið unglingum í elstu bekkjum grunnskóla störf í vinnuskóla og hafa margir Kópavogsbúar stigið þar sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Helstu verkefnin eru snyrting og fegrun bæjarins en elstu unglingunum býðst einnig að vinna við aðstoðarstörf hjá ýmsum stofnunum og félögum í bænum
Garðyrkjustjóri fer með yfirumsjón Vinnuskólans en forstöðumaður og starfslið hans sér um daglega stjórn.
Vinna í skólanum er í senn uppeldi, afþreying og tekjusköpun fyrir unglingana. Þeim er kennt að umgangast verkefni sín, notkun verkfæra og að bera virðingu fyrir samstarfsfólki sínu. Skólinn er þó ekki einungis vinna heldur er þar líka félagslíf, eins og í öðrum skólum. Haldnar eru nokkrar skemmtanir og íþróttakeppni á milli flokka og einstaklinga.
Allir unglingar sem búsettir eru í Kópavogi og ljúka 8., 9. og 10. bekk í vor fá vinnu í Vinnuskólanum en um 75% þessara árganga komu til starfa sumarið 2010 eða um 900 unglingar.
Samþykkt var að Vinnuskóli Kópavogs verði starfræktur 14. júní - 21. júlí.
Opnað verður fyrir umsóknir um störf í Vinnuskólanum í maíbyrjun en áður mun einnig birtast frétt um málið á heimasíðu Kópavogsbæjar. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Vinnuskólans, www.kopavogur.is/vinnuskoli, þegar nær dregur vori.
Netfang: vinnuskoli (hjá) kopavogur.is
