Velferðarsvið

Velferðarsvið

Verkefni velferðarsviðs er að sjá um félagsþjónustu í umboði sveitarstjórnar. Þjónustan miðar að því að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi íbúanna í Kópavogsbæ á grundvelli samhjálpar eins og kveðið er á um í lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Með því að bjóða upp á skipulagða félagsþjónustu er leitast við að tryggja íbúum félagslegt öryggi með heildstæðri félagslegri þjónustu, þar sem lögð er áhersla á að réttur íbúa sé alltaf ljós og einstaklingum ekki mismunað. Þjónustan er opin öllum íbúum og er í formi ráðgjafar og viðeigandi stuðnings og með áherslu á sjálfshjálp einstaklingsins.

Félagsþjónusta Kópavogs heyrir undir velferðarsvið og sinnir öllum Kópavogsbúum. Meðal verkefna má nefna almenna félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, húsnæðismál, málefni aldraðra, félagslega heimaþjónustu, málefni fatlaðs fólks, og málefni barna og ungmenna, þar með talin vinnsla mála samkvæmt barnaverndarlögum.

Sviðsstjóri velferðarsviðs er Aðalsteinn Sigfússon, adalsteinn@kopavogur.is

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica