Viðburðadagatal
Ormadagar í Bókasafni Kópavogs
Bókaormar, krakkaormar, fullorðnir ormar, Ormar einfætti og allir hinir ormarnir
Á Kópavogsdögum 2012 mun Bókasafn Kópavogs einbeita sér að ormum af öllum stærðum og gerðum. Í barnadeild er að finna orm sem hægt er að skríða í gegnum og risastór ormur mun teygja sig frá neðstu hæð upp á þá efstu. Auk þess munu ormar láta á sér kræla hér og þar um húsið. Það eru allir alltaf velkomnir í Bókasafn Kópavogs.
