Vinnustaðurinn
Kópavogsbær er fjölmennur atvinnurekandi. Í janúar 2011 störfuðu hjá bænum um 2.350 starfsmenn í tæplega 1.700 stöðugildum. Talsverð fjölgun varð nú um áramótin þegar málefni fatlaðs fólks voru flutt frá ríki til sveitarfélaga.
Vinnustaðir bæjarins eru fjölmargir og misfjölmennir. Leikskólar, grunnskólar, félagsmiðstöðvar aldraðra og ungmenna, sambýli og íþróttamannvirki er að finna víða um bæinn. Flest söfn eru á menningartorfunni rétt við Kópavogskirkju og stjórnsýslan fer fram í Fannborg 2-6, svokölluðu Torgi.
Sumarstarfsmenn hafa verið fjölmargir en fjöldi þeirra sveiflast talsvert milli ára. Unglingavinna hefur veitt um 600-1000 unglingum sumarvinnu undanfarin ár og annar eins fjöldi ungmenna eldri en 16 ára hefur starfað hér síðustu sumur í margvíslegum störfum.
