Jafnréttisstefna
Jafnréttisstefna Kópavogsbæjar 2010-2014 var samþykkt í bæjarstjórn á vordögum 2010. Í henni má finna stefnumörkun bæjarins í jafnréttismálum auk helstu verkefna sviða og deilda bæjarins. Stofnanir bæjarins vinna sínar eigin jafnréttisáætlanir á grunni þessarar.
Jafnréttisstefna Kópavogsbæjar skiptist í þrjá kafla; Kópavog sem stjórnvald, sem atvinnurekanda og sem þjónustuveitanda.
Kópavogsbær var fyrsta bæjarfélagið að setja á fót jafnréttisnefnd, árið 1975. Kópavogsbær hefur gert fjórar jafnréttisáætlanir, 1991, 1998, 2005 og 2010.
Kópavogsbær undirritaði í maí 2010 Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í evrópskum sveitarfélögum og héruðum (sjá hér: http://www.samband.is/verkefnin/lydraedis--og-mannrettindamal/jafnrettismal/ )
Jafnréttisráðgjafi er Ása K. Kristjánsdóttir, lögfræðingur velferðarsviðs.
Smelltu hér til að lesa jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar í heild sinni.
