Ættleiðingar, forsjár- og umgengnismál

Ættleiðingar, forsjár- og umgengnismál

Þau mál sem koma til vinnslu vegna umgengni eru oft unnin í samvinnu við barnaverndarnefndir og félagsþjónustu í öðrum sveitarfélögum. Sumum þeirra lýkur með sátt og önnur eru lögð fyrir félagsmálaráð.

Í forsjármálum er unnið að því að koma á sáttum og veittar umsagnir þegar foreldrar deila um forsjá og einnig þegar um breytingar á forsjá er að ræða.

Í umgengnismálum er reynt að ná samkomulagi um umgengni og eru gerðar tillögur um umgengni á grundvelli úttektar á stöðu og högum barna og foreldra.

Í ættleiðingarmálum er um að ræða úttektir og umsagnir vegna ættleiðingar á erlendum börnum, ættleiðingar nýfæddra barna, stjúpbarna og fósturbarna.

Nánari upplýsingar veita starfsmenn barnaverndar í síma 570-1500





Þetta vefsvæði byggir á Eplica