Aldraðir

Aldraðir

Í öldrunarþjónustu Kópavogsbæjar er lögð áhersla á að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu fyrir eldri borgara, bæði inni á heimilum þeirra  og utan þeirra sem miðar að því að aldraðir geti búið í sjálfstæðri búsetu sem lengst. 

Félagsleg heimaþjónusta er veitt inn á heimili þeirra sem ekki geta séð hjálparlaust um heimilishald og persónulega umhirðu. Félagsstarf aldraðara er rekið á þremur stöðum í bænum og er starfsemin fjölbreytt og áhugaverð. Dagþjálfun og hjúkrunarsambýli fyrir minnissjúka aldraða er staðsett í Roðasölum. 

Að auki er boðið upp á viðtöl og ráðgjöf um málefni er snúa að öldrunarþjónustu og vistunarmálum.


Yfirmaður þjónustudeildar aldraðra er Svanhildur Þengilsdóttir, netfang svanhildur@kopavogur.is.  og þangað má senda fyrirspurn er varðar þá þjónustu sem er í boði. 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica