Dagþjálfun fyrir aldraða
Dagþjálfun er ætluð minnissjúkum Kópavogsbúum sem orðnir eru 67 ára. Hún er til húsa að Roðasölum 1, sími 570-1481
Megináherslur í starfi dagþjálfunar eru að:
- Rjúfa félagslega einangrun og efla þátttöku í daglegum athöfnum.
- Létta undir með aðstandendum og stuðla að því að viðkomandi geti búið sem lengst heima.
- Fylgjast með daglegu heilsufari.
- Gera hvern dag sem ánægjulegastan.
- Efla sjálfstraust, draga úr vanlíðan og vanmáttarkennd.
Starfsemin er meðal annars byggð upp á samverustundum, blaðalestri, útiveru og gönguferðum, afþreyingu í vinnustofu og borðsal og leikfimi.
Í dagþjálfun er vinnustofa, matsalur og hvíldaraðstaða. Góð baðaðstaða þar sem boðið er upp á aðstoð við böðun. Flestir nýta sér þá aðstoð. Boðið er upp á morgunmat, hádegismat og miðdagskaffi. Einnig er í boði akstur að heiman og heim fyrir þá sem þess óska.
Forstöðumaður er Ída Atladóttir hjúkrunarfræðingur, beinn sími 570-1482, deildarstjóri er Helga María Arnarsdóttir sjúkraliði.
