Hjúkrunar- og dvalarheimili

Hjúkrunar- og dvalarheimili

Kópavogsbær rekur eitt hjúkrunarsambýli ætlað minnissjúkum öldruðum, staðsett í Roðasölum 1. Um er að ræða heimili fyrir minnisskerta einstaklinga á fyrri stigum sjúkdómsins sem ekki geta lengur búið einir heima án eftirlits og aðstoðar. Til þess að sækja um dvöl á hjúkrunarsambýli þarf viðkomandi að eiga gilt vistunarmat.

Markmið þjónustunnar er að:

  • Veita heimilismönnum bestu mögulega þjónustu sem völ er á, með persónulegri umönnun og faglegri umhyggju.
  • Viðhalda andlegri, líkamlegri og félagslegri færni heimilismanna, reisn, sjálfsmynd og sjálfsvirðingu.
  • Veita heimilismönnum öryggi og vellíðan.
  • Stuðla að jákvæðum samskiptum sem einkennast af virðingu, skilningi, hlýju, trausti og hjálpsemi.

Lögð er áhersla á að hafa hjúkrunarsambýlið sem heimilislegast og sem líkast venjulegu heimili m.a. með því að elda heimilismat og hafa allt yfirbragð notalegt og aðlaðandi. Að auki er lögð áhersla á tómstundastarf og líkamsþjálfun ásamt því að virkja fólk eins og hægt er til þátttöku daglegra verka á heimilinu.

Hjúkrunarsambýli á vegum Kópavogsbæjar:

Önnur dvalar-og hjúkrunarheimili í Kópavogi:







Þetta vefsvæði byggir á Eplica