Matarþjónusta
Hægt er að kaupa og borða heitan mat í hádeginu alla virka daga
í félagsheimilum eldri borgara að:
- Gjábakka í Fannborg 8 sími 554-3400
- Gullsmára í Gullsmára 13 sími 564-5260
- Boðanum í Boðaþingi 9 sími 512-7400
Tilkynna skal komu sína í matinn samdægurs fyrir kl. 9:30 í síma félagsheimilanna.
Verðskrá á mat (frá 1. janúar 2012):
- Stök máltíð 67 ára og eldri............kr. 920
- Kort með 10 miðu..........................kr. 9.200
- Stök máltið fyrir yngri en 67 ára...kr.1.040
- Kaffi ..................................................kr. 130
- Kaka/brauð .................................... kr. 240
Þeir sem af heilsufarsástæðum geta ekki annast matseld sjálfir né komist ferða sinna hjálparlaust geta fengið heimsendan mat í hádeginu alla daga vikunnar.
Maturinn er afgreiddur í bökkum og er keyrður heim til viðkomandi um hádegisbil.
Panta þarf heimsendingu á föstudögum fyrir kl. 14.00 fyrir næstu sjö daga, þ.e. ef viðkomandi vill fá mat á laugardegi, sunnudegi og/eða á mánudegi til föstudags í komandi viku. Það sama á við um rauða daga.
Umsóknareyðublað fyrir heimsendan mat til útprentunar.
Verðskrá á heimsendum mat:
- Máltíð........................kr. 920
- Akstur virka daga....kr. 350
- Akstur um helgar....kr. 350
Greiðsluseðill er sendur út mánaðarlega og er hægt að greiða hann
í öllum bönkum og pósthúsum.
Frekari upplýsingar um heimsendan mat veita þjónustustjórar félagslegrar heimaþjónustu í síma 570- 1500.
