Vistunarmat fyrir aldraða
Aldraðir einstaklingar þurfa gilt vistunarmat til að komast á dvalar- eða hjúkrunarheimili. Til þess að sækja um vistunarmat þarf að fylla út umsóknareyðublöð og koma þeim útprentuðum í hendur viðeigandi aðila.
1. Umsóknareyðublað fyrir hjúkrunarrými. Þegar sótt er um hjúkrunarrými þarf að fylla nákvæmlega út eyðublaðið:
Umsókn um heimild til visturnarmats.
Einnig má nálgast eyðublaðið hjá þjónustuveri Kópavogsbæjar, Fannborg 2. Umsókninni þarf að koma til vistunarmatsnefndar heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík. Nánari upplýsingar um hjúkrunarrými má fá á heimasíðu Landlæknisembættisins, undir málaflokknum aldraðir
2. Umsóknaeyðublað fyrir dvalarrými. Þegar sótt er um dvalarrými þarf að fylla nákvæmlega út eyðublaðið:
Umsókn um mat á þörf aldraðra fyrir dvalarrými.
Einnig má nálgast eyðublaðið hjá þjónustuveri Kópavogsbæjar, Fannborg 2. Umsókninni þarf að koma til þjónustudeildar aldraðra hjá Kópavogsbæ, Fannborg 2.
Nánari upplýsingar um dvalarrými má fá á heimasíðum Félags-og tryggingamálaráðuneytisins undir málaflokknum aldraðir.
Sjá ítarefni: Bæklingur um vistunarmat fyrir aldraða
