Fatlað fólk
Í málefnum fatlaðs fólks er unnið samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um málefni fatlaðs fólks. Þjónusta við fatlað fólk skal miða að því að tryggja fötluðu fólki jafnrétti og skapa þeim skilyrði til að lifa eðlilegu lífu og taka virkan þátt í samfélaginu.
Umfang þjónustu við fatlað fólk tók miklum breytingum um síðustu áramót þegar Kópavogsbær tók við framkvæmd þjónustu ríkisins. Stuðningsúrræði, búsetuúrræði, dagþjónusta og starfsþjálfun sem áður voru á vegum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi eru nú á hendi Félagsþjónustunnar auk þeirrar þjónustu sem þegar var til staðar eins og búsetuþjónusta, liðveisla og ferðaþjónusta.
Í byrjun árs 2011 vann sérnefnd um yfirfærslu málefna fatlaðra stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks sem ber heitið "bæjarfélag fyrir alla" og var hún samþykkt í bæjarráði þann 3. mars 2011. Stefnumótunina má nálgast hér.
Nánari upplýsingar um þjónustu við fatlað fólk veitir Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra, netfang gudlaugo@kopavogur.is.
