Búseta

Búseta

Fyrir fatlað fólk

Markmið búsetuþjónustu er að gera einstaklingum með fötlun kleift að búa á eigin heimili í samræmi við þarfir og óskir eftir því sem kostur er og efla þar með vald fólks yfir aðstæðum sínum og lífi, styrkja sjálfsmynd þess, sjálfstraust, félagslega stöðu, sjálfsvirðingu og lífsgæði.  

Með húsnæðisúrræði er átt við:

  • Húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, 18 ára eða eldra.
  • Sérstök stuðningsúrræði við fatlað fólk á heimili þess.

Forsendur búsetuþjónustu:

Þjónustuúrræðin eru ætluð fyrir einstaklinga með fötlun sem hafa varanlegt örorkumat og eru í búsetu sem uppfyllir ekki óskir þeirra og sérstakar þarfir vegna fötlunar.

Sjá nánar um mat og afgreiðslu í reglur um húsnæðisúrræði

Hér má nálgast umsóknareyðublað.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica