Dagþjónusta og vinnuúrræði
Dagþjónusta og vinnuúrræði
Fyrir fatlað fólk
Markmið þjónustu er að veita einstaklingum með fötlun þjálfun og stuðning sem miðar að því að auka hæfni til starfa og þátttöku í daglegu lífi eða á almennum vinnumarkaði.
Með dagþjónustu er átt við:
- Hæfingu
- Starfsþjálfun
- Verndaða vinnu
Forsendur dagþjónustu:
Þjónustan er ætluð fyrir einstaklinga með fötlun sem eiga lögheimili í Kópavogi og uppfylla eftirtalin skilyrði:
- Hafa náð 18 ára aldri.
- Hafa varanlega örorku.
Sjá nánar um mat og afgreiðslu í reglur um dagþjónustu við fatlað fólk.
Hér má nálgast umsóknareyðublað.
