Félagsleg liðveisla

Félagsleg liðveisla

Fyrir fatlað fólk

Með félagslegri liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun og efla sjálfstæði í félagslegum samskiptum. Félagsleg liðveisla er veitt að jafnaði frá 6 ára aldri.

Börn á aldrinum 6-17 ára sem í eru í fjórða og fimmta umönnunarflokk Tryggingastofnunar ríkisins og uppfylla skilyrði um félaglega einangrun geta átt rétt á félagslegri liðveislu.

Félagsleg liðveisla er tímabundin og er tímalengd háð mati hverju sinni. Samþykkt um þjónustu skal endurskoðuð reglulega, fyrst að þremur mánuðum liðnum. Leitast skal við að stuðningur hefjist innan mánaðar frá samþykki.

  • Að jafnaði skal miðað við allt að 16 tíma í liðveislu á mánuði. Þegar sérstök rök mæla með því er heimilt að veita allt að 36 tíma á mánuði.
  • Í sérstökum tilvikum er leyfilegt að veita einstaklingum á heimilum fatlaðs fólks liðveislu og þá að hámarki 8 tíma á mánuði.

Sjá nánar um mat og afgreiðslu í reglur um stuðningsþjónustu við fatlað fólk.

Hér má nálgast umsóknareyðublað.

Eyðublöð fyrir liðveitendur:

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica