Ferðaþjónusta fatlaðs fólks

Ferðaþjónusta

Fyrir fatlað fólk og aldraða

Ferðaþjónusta fatlaðra, sbr. lög um málefni fatlaðra nr. 59/1992, er fyrir þá íbúa sem geta ekki notað almenningsvagna og hafa ekki aðgang að eigin farartæki. Sérútbúnir bílar eru notaðir í ferðaþjónustunni til að geta ekið fólki sem notar hjólastóla.

Skila þarf skriflegri umsókn á þar til gerðu eyðublaði sem nálgast má í þjónustuveri bæjarins í Fannborg 2 eða rafrænt til útprentunnar hér. Læknisvottorð þarf ávallt að fylgja umsókn til að staðfesta fötlun umsækjanda eða skort á getu hans til að ferðast með almenningsvögnum. Í umsókn þurfa að koma fram ástæður fyrir umsókn, svo og óskir um fjölda ferða.

Samkvæmt reglum er hámarksfjöldi ferða 68 í mánuði og hafa ferðir í vinnu og skóla forgang.
Ferðum er úthlutað að jafnaði til eins árs í senn.

Gjald fyrir hverja ferð hjá fötluðu fólki miðast við helming af fargjaldi almenningsvagna.

Aldraðir greiða 500 kr. fyrir hverja ferð, fari ferðafjöldi yfir 16 ferðir á mánuði greiðast 1000 kr. fyrir hverja ferð.

Gjaldið er innheimt með gíróseðli um hver mánaðarmót.

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica