Frekari liðveisla
Fyrir fatlað fólk
Með frekari liðveislu er átt við margháttaða aðstoð við ýmsar athafnir daglegs lífs. Frekari liðveisla kemur til álita þegar almenn þjónusta dugar ekki til og er veitt í þeim tilvikum þegar hægt er að koma í veg fyrir dvöl á stofnun.
Samþykkt um þjónustu skal að jafnaði endurskoðuð reglulega, fyrst að þremur mánuðum liðnum. Leitast skal við að stuðningur hefjist innan mánaðar frá samþykki.
Frekari liðveisla er tímabundin og er tímalengd háð mati hverju sinni. Gerður er skriflegur samningur um þjónustuna.
Sjá nánar um mat og afgreiðslu í reglur um stuðningsþjónustu við fatlað fólk.
Hér má nálgast umsóknareyðublað.
