Réttindagæslumaður

Réttindagæslumaður

fyrir fatlað fólk

Réttindagæslumaður skal fylgjast með högum fatlaðs fólks og aðstoða það við hvers konar réttindagæslu.

Fatlað fólk getur leitað til réttindagæslumanns með allt sem varðar réttindi þess.

Réttindagæslumaður veitir þeim sem til hans leita stuðning og aðstoðar fólk við að leita réttar síns.

Réttindagæslumaður getur tekið upp mál á sínu eigin frumkvæði.

Hver sá sem telur að brotið sé á réttindum fatlaðs fólks á að tilkynna það réttindagæslumanni.

Réttindagæslumaður stendur fyrir fræðslu fyrir fatlað fólk og þá sem starfa með því.

Hægt er að fá frekari upplýsingar um réttindagæslumenn hér í lögum um réttindagæslumenn.

Réttindagæslumaður fatlaðs fólks í Kópavogi er Ingibjörg Gyða Guðrúnardóttir

Hægt er að senda henni póst á: ingibjorg.gyda(hjá)rett.vel.is
Hægt er að hringja í hana í síma: 8581753
Aðsetur hennar er við Hlíðarsmára 6, 2. hæð
201 Kópavogur.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica