Stuðningsfjölskyldur

Stuðningsfjölskyldur

Fyrir fötluð börn

Hlutverk stuðningsfjölskyldna er að taka fatlað barn í umsjá sína í skamman tíma í þeim tilgangi að  létta álagi á fjölskyldum barna með fötlun og í sérstökum tilvikum fjölskyldum barna í fjórða og fimmta umönnunarflokki Tryggingastofnunar ríkisins. 

Þörf fyrir þjónustu er metin í hverju tilfelli fyrir sig út frá aðstæðum  barns og fjölskyldu. Við matið er horft til  umönnunarþunga, stigs fötlunar og félagslegra aðstæðna fjölskyldunnar.

  • Að jafnaði eru veittir tveir sólarhringar á mánuði í dvöl hjá stuðningsfjölskyldu.
  • Í sérstökum tilvikum er leyfilegt að veita  allt að fimm sólarhringa á mánuði.

Tekið skal tillit til óska foreldra við val á stuðningsfjölskyldu ef hægt er. Aðstæður hjá stuðningsfjöskyldu eru kannaðar af starfsmönnum þjónustudeildar og óskað eftir heilbrigðis- og sakavottorði. Greiðslur til stuðningsforeldra taka mið af umönnunarflokki barnsins samkvæmt Tryggingastofnun ríkisins eða samkvæmt viðmiðum Félagsþjónustu Kópavogs.

Sjá nánar um mat og afgreiðslu í reglur um stuðningsþjónustu.

Hér má nálgast umsóknareyðublað.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica