Styrkir
Fyrir fatlað fólk
Markmið með veittum styrkjum er að veita einstaklingum með fötlun aðstoð til að fara í nám, stunda heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi.
Annars vegar eru um að ræða námsstyrki fyrir námskeiðsgjöldum, skólagjöldum og námsgögnum og hins vegar styrki vegna verkfæra- og tækjakaupa til að skapa atvinnutækifæri.
Forsendur styrkveitinga
Þjónustan er ætluð fyrir einstaklinga með fötlun sem eiga lögheimili í Kópavogi og uppfylla eftirtalin skilyrði:
- Hafa náð 18 ára aldri.
- Hafa varanlega örorku.
Styrkjum er úthlutað einu sinni á ári og taka úthlutanir mið af fjárhagsáætlun og fjölda umsókna hverju sinni. Um er að ræða eftirtalda styrki:
- Námsstyrki fyrir námskeiðsgjöldum, skólagjöldum og námsgögnum.
- Styrki vegna verkfæra- og tækjakaupa til að skapa atvinnutækifæri.
Sjá nánar um mat og afgreiðslu í reglur um styrki.
Hér má nálgast umsóknareyðublað.
