Félagsleg heimaþjónusta

Félagsleg heimaþjónusta

Félagsleg heimaþjónusta hefur það markmið að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur sem geta ekki án utanaðkomandi aðstoðar séð um heimilishald. Þjónustan getur verið veitt tímabundið eða til lengri tíma, allt eftir aðstæðum.
Sjá reglur um félagslega heimaþjónustu.

Samkvæmt lögum um málefni aldraðra og lögum um félagslega þjónustu sveitarfélaga eiga þeir rétt á félagslegri heimaþjónustu sem búa í heimahúsum og geta ekki vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda, barnsburðar eða fötlunar sinnt heimilishaldi eða öðru hjálparlaust.

Réttur til heimaþjónustu er bundinn því skilyrði að fyrir liggi einstaklingsbundið mat á þörf fyrir þjónustu.

Sækja þarf skriflega um félagslega heimaþjónustu, umsóknareyðublað. Eftir að umsókn hefur borist Félagsþjónustunni hefur þjónustustjóri heimaþjónustu samband og ákveður heimsókn til að meta í samráði við umsækjanda þörfina fyrir þjónustu. Þegar mat liggur fyrir er gengið frá þjónustusamningi þar sem nánar er tilekið hvaða gjald er tekið fyrir þjónustuna og hvaða verkefni starfsmaður skuli inna af hendi.

Þjónustustjórar heimaþjónustu fara yfir umsóknir um félagslega heimaþjónustu, meta og endurmeta þjónustuþörf, gera þjónustusamninga, skipuleggja vinnuáætlun starfsmanna og afleysingar. Að auki veita þeir frekari upplýsingar er varða þjónustuna og breytingu á þjónustu til þjónustuþega.

Þjónustustjórar veita allar nánari upplýsingar í síma 570-1500 eða í tölvupósti:

Símatímar þjónustustjóra eru mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9:00 – 10:00 og þriðjudaga til fimmtudaga frá kl.13:00 – 14:00. Ekki eru símatímar á föstudögum en hægt er að skilja eftir skilaboð í Þjónustuveri Kópavogsbæjar.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica