Fjárhagsaðstoð
Fjárhagsaðstoð frá Félagsþjónustu Kópavogs fer eftir 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og reglum Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð.
Símtöl
Þjónustuverið tekur við óskum um símtöl við ráðgjafa í síma 570-1500 og hringja ráðgjafar til baka.
Upphæð fjárhagsaðstoðar
Upphæð fjárhagsaðstoðar tekur mið af tekjum umsækjanda eða hjóna/sambúðarfólks og ákveðinni grunnfjárhæð sem er kr. 142.020 fyrir einstakling en kr. 227.232 fyrir hjón eða sambýlisfólk. Aðstoðin er í formi styrks eða láns.
Hverjir eiga rétt?
Í 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga segir m.a. að hverjum manni er skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Verði einstaklingur að leita eftir aðstoð sveitarfélagsins um þetta þarf hann að vera fjárráða og eiga lögheimili í bænum. Sjálfstætt starfandi einstaklingar þurfa að hafa lagt inn vsk-númer sitt. Fjárhagsaðstoð er veitt í tengslum við önnur úrræði, t.d. ráðgjöf og leiðbeiningar.
Hvernig er sótt um?
Panta þarf viðtal hjá ráðgjafa þegar sótt er um fjárhagsaðstoð. Tímapantanir eru í síma 570-1500.
Það flýtir afgreiðslu umsóknar að hafa tiltæk eftirtalin gögn þegar komið er í viðtal:
- Tekjuseðlar (laun/bætur) fyrir síðustu 2 mánuði.
- Nýjasta skattframtal og álagningarseðill.
- Skráning í Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins eða læknisvottorð um óvinnufærni.
- Önnur gögn eða gjöld sem við geta átt, s.s. yfirlit yfir greiðsluþjónustu.
- Dvalarleyfisskírteini frá Útlendingastofnun hafi umsækjandi erlent ríkisfang.
Umsókn þarf að vera undirrituð af umsækjanda.
Hvernig er ákvörðun um fjárhagsaðstoð tekin?
Umsóknir eru lagðar fyrir teymisfund starfsmanna og í vissum tilfellum einnig fyrir félagsmálaráð. Áfrýja má niðurstöðu félagsmálaráðs til Úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæísmála í velferðarráðuneytinu.
Er fjárhagsaðstoð framtalsskyld og skattskyld?
Allir fjárhagsstyrkir eru skattskyldir og af þeim er dregin staðgreiðsla skatta.
Áríðandi er að skila inn skattkorti a.m.k. degi áður en til greiðslu kemur.
Á skattframtali ber að telja fram til tekna þá aðstoð sem veitt hefur verið í formi styrks en launaseðlar eru sendir út í janúar ár hvert. Fjárhagsaðstoð sem veitt er á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga er ætíð endurkræf.
Er veitt fjárhagsaðstoð vegna náms?
Í vissum tilvikum er veitt námsaðstoð. Takmarkaður fjöldi einstaklinga getur fengið slíka aðstoð á hverju ári. Skilyrði fyrir námsaðstoð eru m.a. að viðkomandi sé:
- Á aldrinum 18-25 ára.
- Hafi ekki lokið grunnskóla eða framhaldsskóla vegna félagslegra erfiðleika.
- Hafi verið atvinnulaus eða fengið fjárhagsaðstoð í minnst 6 mánuði og ekki lokið grunnnámi sem gefur rétt á námsláni.
Leggja þarf inn umsókn 2 mánuðum áður en nám hefst.
Upphæð námsaðstoðar miðast við almenna aðstoð til framfærslu hjá Félagsþjónustunni samkvæmt reglum þar um.
