Húsaleigubætur

Húsaleigubætur

Kópavogur greiðir húsaleigubætur skv. lögum nr. 138/1997 er tóku gildi 1. jan. 1998.
Sótt er um húsaleigubætur á þar til gerðu umsóknareyðublaði sem nálgast má í þjónustuveri eða hér á heimasíðunni.

Hverjir eiga rétt?

Þeir leigjendur eiga rétt á húsaleigubótum sem leigja íbúðarhúsnæði til búsetu og eiga þar lögheimili. Uppfylla þarf eftirtalin skilyrði varðandi húsnæðið:

  1. Íbúðarhúsnæðið skal vera skilgreint sem íbúðarhúsnæði hjá byggingafulltrúa.
  2. Íbúðarhúsnæðið verður að vera a.m.k. eitt svefnherbergi ásamt séreldhúsi eða eldunaraðstöðu og sérsnyrtingu og baðaðstöðu.

Ekki eru greiddar húsaleigubætur vegna leigu á einstaklingsherbergjum eða ef eldhús eða snyrting er sameiginleg fleirum nema í undantekningartilvikum þegar um er að ræða fatlaða einstaklinga á sambýlum og námsmenn á framhalds- og háskólastigi sem leigja herbergi á heimavist eða á stúdentagörðum.

Hverjir eiga ekki rétt?

Þrátt fyrir að almenn skilyrði bótaréttar séu uppfyllt þá er réttur til húsaleigubóta ekki fyrir hendi í eftirfarandi tilfellum:

  • Ef húsnæðið sem um ræðir hefur verið skilgreint hjá byggingafulltrúa sem iðnaðar-, verslunar- eða skrifstofuhúsnæði eða bílskúr.
  • Ef íbúð er í bílskúr og hefur ekki verið samþykkt af byggingarfulltrúa.
  • Ef leigusali og umsækjandi, eða einhver sem býr með umsækjanda, búa í sama húsi og eru skyldmenni í beinan legg.
  • Ef umsækjandi eða einhver, sem í húsnæðinu býr með honum, nýtur réttar til vaxtabóta.
  • Ef leigusamningur er til skemmri tíma en 6 mánaða

Umsóknareyðublað

Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókn, athugið að skila þarf umsókn fyrir 16. dag fyrsta greiðslumánaðar:

  • Afrit af síðasta skattframtali staðfest af skattstjóra.
  • Launaseðlar þriggja síðustu mánaða allra heimilismanna.
  • Frumrit þinglýsts leigusamnings á staðfestu samningseyðublaði félagsmálaráðuneytis eða Íbúðalánasjóðs. Þetta ákvæði á ekki við um félagslegar leiguíbúðir.
  • Staðfesting skóla um nám barna umsækjanda sem eru eldri en 20 ára og stunda skólanám í sex mánuði eða lengur á árinu.
  • Staðfesting á lögheimili í íbúð frá Hagstofu Íslands eða útprentað úr þjóðskrá.
    Ath. umsókn er ekki afgreidd fyrr en öll fylgigögn hafa borist.

Þarf að endurnýja umsókn?

Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka. Umsækjendur þurfa að endurnýja umsókn sína fyrir 16. janúar ár hvert til þess að greiðslur falli ekki niður.

Áhrif tekna og eigna á fjárhæð húsaleigubóta.

Bætur skerðast, óháð fjölskyldustærð, í hverjum mánuði um 1% af árstekjum umfram 2.250.000 kr. samkvæmt reglugerð um húsaleigubætur. Tekjugrunnur hækkar um sem nemur 25% af nettó eignum umfram 6.383.000 kr.*
(*miðað við 1. janúar 2012)

Hvernig eru húsaleigubætur greiddar út?

Húsaleigubætur eru eftirágreiddar og koma til greiðslu frá og með þeim mánuði sem réttur til bóta hefur verið staðreyndur. Bætur eru greiddar út mánaðarlega eigi síðar en 5. dag hvers mánaðar.
Bætur til leigutaka félagslegra íbúða eru teknar til lækkunar greiðsluseðla vegna leigu næsta mánaðar eftir bótamánuð.

Nánari upplýsingar og reikniforrit er að finna á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica