Leiguhúsnæði
Hefur þú rétt til að leggja inn umsókn?
Umsækjandi þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði:
- Hafa átt lögheimili og aðsetur í Kópavogi a.m.k. í 6 mánuði áður en umsókn berst Félagsþjónustunni.
- Má ekki eiga fasteign í neinu því formi sem jafna má til íbúðarhúsnæðis.
Vera innan tekju- og eignamarka sem eru 1. janúar 2012:
- Tekjumörk einstaklings............................kr. 3.894.000.
- Tekjumörk hjóna og sambúðarfólks.....kr. 5.452.000.
- Fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem
býr á heimilinu bætast síðan við............kr. 652.000. - Eignamörkin eru.......................................kr.4.203.000.
Verði breyting á félagsaðstæðum leigjenda t.d. hjúskaparstöðu, fjölskyldustærð eða fjárhagsstöðu, getur það leitt til þess að réttur til leigu verði endurskoðaður.
Fylgigögn og ferli umsóknar:
Umsókn um félagslega leiguíbúð skal berast til þjónustufulltrúa í ráðgjafa og húsnæðisdeild. Umsókn skal rituð á umsóknareyðublað. Með umsókninni skal fylgja ljósrit af launa og/eða bótaseðlum heimilisfólks fyrir þrjá síðustu mánuði, ljósrit af síðasta skattframtali og ef við á örorkuvottorð.
Þjónustufulltrúi í ráðgjafa og íbúðadeildar tekur við umsóknum og kannar hvort skilyrði til úthlutunar sé fullnægt og skráir stigagjöf samkvæmt matsblaði. Hann sendir umsækjanda skriflegt svar þar sem fram kemur hvort hann eigi gilda umsókn og sé kominn á biðlista. Fullnægi umsókn ekki skilyrðum til úthlutunar skal umsækjanda gefið rökstutt svar þar að lútandi.
Stigagjöf samkvæmt matsblaði er samanlagður stigafjöldi á 24 stiga kvarða sem nær til tekna, húsnæðisaðstæðna, félagslegra aðstæðna, stöðu umsækjanda og aldurs umsóknar. Stigafjöldi umsóknar skal að jafnaði ráða forgangsröðun á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði.
Umsóknareyðublað um félagslegt leiguhúsnæði
Hver eru leigukjörin?
Við ákvörðun húsaleigu er tekið mið af fasteignamati viðkomandi íbúðar. Til viðbótar er greitt framlag í hússjóð sem er mismunandi eftir stærð íbúðar og staðsetningu.
Rétt er að benda á að leigutakar eiga kost á að fá greiddar húsaleigubætur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.Við undirritun leigusamnings er öllum leigutökum skylt að leggja fram tryggingafé sem nemur tveggja mánaða leigu. Tryggingaféð er ætlað til að mæta hugsanlegum viðgerðarkostnaði á skemmdum á íbúðinni, en kemur ella til útborgunar ásamt verðbótum við lok leigutímans.
Endurnýjun umsókna
Umsækjandi þarf að endurnýja umsókn sína a.m.k. einu sinni á hverju 12 mánaða tímabili eftir að umsókn er fyrst lögð inn. Jafnframt skal umsækjandi þá gera grein fyrir þeim hugsanlegu breytingum á aðstæðum sínum sem áhrif kunna að hafa á rétt hans til leigunnar. Misbrestur þar á leiðir til að umsókn er tekin af skrá.
| Umsóknareyðublað um endurnýjun |
Starfsmenn ráðgjafa og íbúðadeildar veita margháttaðar upplýsingar um húsnæðismál, m.a. um gerð húsaleigusamninga.
