Menningarstarf

Menningarstarf

Fjölbreyttir menningarviðburðir eru skipulagðir af Kópavogsbæ í samvinnu við stofnanir, félagasamtök og einstaklinga í Kópavogi og öðrum sveitarfélögum.

Má þar nefna Kópavogsdaga, ljóðasamkeppnina Ljóðstafur Jóns úr Vör, safnanótt, jólahátíð,
17. júní hátíðarhöld og áramótabrennur.

Með styrkveitingum úr lista- og menningarsjóði eru bæjarbúar hvattir til að koma listviðburði
eða verkefni sínu á framfæri.