Jón úr Vör
Á hverju ári er efnt til ljóðasamkeppni undir heitinu Ljóðstafur Jóns úr Vör.
Veitt eru vegleg verðlaun og verðlaunaskáldið fær til varðveislu, í eitt ár, göngustaf Jóns heitins úr Vör sem á er festur skjöldur með nafni þess.
Þriggja manna dómnefnd velur úr ljóðum sem berast samkeppninni.
Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina. Þau mega ekki hafa birst áður. Ljóðum skal skilað með dulnefni og skal nafn, heimili og sími skáldsins fylgja með í lokuðu umslagi auðkennt með sama dulnefni. Aðeins má senda eitt ljóð í hverju umslagi og þess vænst að ljóðunum sé skilað á pappírsstærðinni A-4 eða A-5.
Skilafrestur er auglýstur í desember og utanáskriftin er:
„Ljóðstafur Jóns úr Vör“
Menningar- og þróunardeild Kópavogs
Fannborg 2,
200 Kópavogi
Afhending verðlaunanna fer fram á afmælisdegi Jóns úr Vör, 21. janúar, ár hvert.
Þátttökuljóð má sækja á ofangreint heimilisfang fyrir 1. febrúar, eftir það verður þeim eytt.
