Vinabæir
Kópavogur hóf vinabæjasamskipti við aðra bæi og borgir á Norðurlöndum árið 1964. Það ár var komið á tengslum við Óðinsvé í Danmörku, Þrándheim í Noregi, Norrköping í Svíþjóð og Tampere í Finnlandi. Árið 1967 voru tekin upp vinabæjatengsl við Klakksvík í Færeyjum, árið 1974 við Maríuhöfn á Álandseyjum og tveimur árum síðar við Ammassalik á Grænlandi. Á árinu 2008 varð Wuhan í Kína formlega vinabær Kópavogs.
Margs konar samskipti hófust fjótlega við vinabæi okkar á Norðurlöndum, má þar nefna vinabæjamót sem haldin hafa verið nokkuð reglulega á 2ja til 3ja ára fresti til skiptist í vinabæjunum. Einnig hafa verið samskipti milli skóla með gagnkvæmum heimsóknum nemenda og kennara, íþróttamót sem einnig er fastur liður svo og ýmis konar önnur samskipti, þar sem skipst er á upplýsingum um allskyns málaflokka, svo sem bæjarmál, menningarmál, verklegar framkvæmdir o.fl.
Vinabæir Kópavogs:
- Ammassalik á Grænlandi
- Odense í Danmörku
- Tampere í Finnlandi
- Trondheim í Noregi
- Klaksvík í Færeyjum
- Mariehamn á Álandseyjum
- Norrköping í Svíþjóð
- Wuhan í Kína
