Hjólreiðaáætlun
Kópavogur stefnir að því að auka veg hjólreiða sem samgöngumáta í sveitarfélaginu þannig að hjólreiðar séu aðgengilegur, skilvirkur og öruggur ferðamáti í bænum. Mikilvægt er að Kópavogsbúar og þeir sem eiga erindi í Kópavog geti komist leiðar sinnar á hjóli á auðveldan og öruggan hátt.
Unnið er að gerð hjólreiðaáætlunar sem stefnt er að verði lokið í maí 2012. Söfnun gagna í þá vinnu hefur verið með ýmsum hætti en síðastliðið sumar var gerð notendakönnun meðal hjólreiðamanna og talning á hjólandi og gangandi vegfarendum á völdum göngustígum í Kópavogi. (sjá skýrslu hér).
Þann 16. september 2011 var opnuð heimasíða þar sem hjólreiðamenn og aðrir áhugasamir gátu skoðað tillögu að neti hjólaleiða og komið með ábendingar varðandi þær.
Verið er að leggja lokahönd á skipulag hjólaleiðanna með hliðsjón af ábendingum sem bárust og í kjölfarið verður unnin framkvæmdaráætlun fyrir hverja hjólaleið. Hjólreiðaáætlunin tengist gerð umferðaröryggisáætlunar og verður hluti af henni.
Framkvæmdum og hönnun á hjólaleiðum (sér stíga, breikkun stíga, hjólareinar, hjólavísa eða annað) verður síðan framhaldið næstu ár í samræmi við fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar.
Frekari upplýsingar verða settar hingað inn eftir því sem verkefnið vinnst áfram.
