Samgönguvika
Samgönguvika er evrópskt átak um vistvænni samgöngur í borgum og bæjum og er haldin árlega. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga.
Kópavogsbær tók fyrst þátt árið 2004 en síðan 2009 hefur bærinn verið virkur þátttakandi og tekið þátt í að skipuleggja og halda úti viðburðum ásamt nokkrum sveitarfélögum á suðvesturlandi.
Dagskrá vikunnar mun verða kynnt hér á heimasíðunni þegar nær dregur og einnig á heimasíðu vikunnar http://www.samgonguvika.is/ sem fleiri sveitarfélög og Umhverfisráðuneytið standa að.
