Umferðaröryggisáætlun

Umferðaröryggisáætlun

Ert-thuÁ síðastliðnum árum hefur verið unnið markvisst að því að draga úr umferðarhraða í Kópavogi. Kópavogsbær hefur látið vinna skýrslur um umferðaröryggi síðan 1992 og í lok árs 2001 kom út umferðarskipulag fyrir allan Kópavog ásamt framkvæmdaráætlun sem unnið hefur verið eftir. Í janúar 2010 var undirritaður samningur á milli Umferðarstofu og Kópavogsbæjar um gerð umferðaröryggisáætlunar.

Í desember 2011 var stofnaður samráðshópur um umferðaröryggisáætlunina en í honum eru fulltrúar frá umhverfissviði Kópavogs sem halda einnig utan um verkefnið, skipulags- og byggingardeild Kópavogs, grunnskóladeild Kópavogs, Umferðarstofu, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Vegagerðinni og Strætó bs.

Markmið umferðaröryggisáætlunar er að draga úr slysum og óhöppum í umferðinni. Í áætluninni er verkefnum forgangsraðað eftir mikilvægi sem gerir það að verkum að auðveldara er að áætla kostnað og komið er í veg fyrir óskilvirkar aðgerðir.

Í febrúar var óskað eftir ábendingum frá íbúum um öll þau málefni sem snúa að umferðaröryggi. Þá má nefna umferðaröryggi í kringum grunnskóla, strætó, hraðahrindranir, skipulag umferðarmála og hjólreiðar.  Þó nokkrar ábendingar bárust. Á sama tíma hafa starfsmenn umhverfissviðs fundað með öllum skólaráðum grunnskólanna um hvað mætti betur fara og forsvarsmenn stórra bílastæða í Kópavogi en þar má sjá mikla samþjöppun óhappa.

Vinstra megin á síðunni eru fleiri undirsíður sem snerta umferðaröryggi og hvetjum við ykkur til að skoða þær. Einnig er hægt að skoða þegar fram komnar ábendingar og tillögur hér fyrir neðan.

Tillögur og ábendingar um bætt umferðaröryggi í Kópavogi

Ábendingar skólaráða grunnskóla Kópavogs um bætt umferðaröryggi í kring um skólana

 

Frekari ábendingar má senda á tölvupóstfangið umferdaroryggi@kopavogur.is