Dægrardvöl
Dægradvöl starfar við alla grunnskóla bæjarins og stendur til boða fyrir öll börn í 1. – 4. bekk. Dægradvöl er frjálst tilboð þar sem börn dvelja við leik og skapandi starf í umsjá starfsfólks eftir að skóla lýkur. Börnin eru skráð inn í Dægradvöl og fylgst vel með hvar þau eru að leik og starfi uns þau eru skráð út við brottför.
Stjórnun
Skólastjóri hvers skóla ber rekstrarlega og faglega ábyrgð á starfsemi Dægradvalar. Ábyrgð á daglegri starfsemi er í höndum umsjónarmanns.
Opnunar- og gjaldtökutími Dægradvalar er frá því að skóladegi barnanna lýkur ( um kl. 13.20) til kl. 17.15. Dægradvöl er opin alla daga sem grunnskólar starfa og einnig allan daginn á starfsdögum kennara á skólatíma. Dægradvöl er ekki opin í vetrarfríum skólanna. Starfsemi Dægradvalar hefst á skólasetningardegi og lýkur á skólaslitadegi.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um vist í Dægradvöl fást hjá viðkomandi skólum og á heimasíðu Kópavogs.
Matur
Öllum börnum í 1. – 4. bekk í Kópavogi er boðið upp á síðdegishressingu gegn greiðslu.
Gjald
Samræmt gjald er fyrir vist í Dægradvöl í Kópavogi. Gjaldflokkarnir eru fjórir og miðast þeir við eina, tvær, þrjár eða fjórar klst. á dag.
| Allt að 20 klst á mán | 6.000 kr. |
| 21-40 klst á mán | 10.500 kr. |
| 41-60 klst á mán | 14.000 kr. |
| 61-80 klst á mán | 16.500 kr. |
| Matargjald | 125 kr. |
Systkinaafsláttur er 50% af grunngjaldi, eða 3.000 kr., fyrir annað og 75%, eða 4.500 kr., fyrir þriðja systkini. Systkinaafsláttur tekur einnig til yngri systkina sem eru í leikskóla eða í vistun hjá dagforeldrum.
Greiðslur og innheimta
Innheimta dvalar- og matargjalda fyrir Dægradvöl fer fram hjá Innheimtudeild Kópavogs. Dvalargjöld skulu greiðast fyrirfram í hverjum mánuði. Sé skuld ekki greidd fyrir lok mánaðarins ber skólastjóra að senda áminningarbréf eftir þann 15. og segja plássinu upp frá og með næstu mánaðarmótum þar á eftir.
Greiðslur og innheimta
Innheimta dvalar- og matargjalda fyrir Dægradvöl fer fram hjá Innheimtudeild Kópavogsbæjar. Dvalargjöld skulu greiðast fyrirfram í hverjum mánuði. Sé skuld ekki greidd fyrir lok mánaðarins ber skólastjóra að senda áminningarbréf eftir þann 15. næsta mánaðar og segja plássinu upp frá og með næstu mánaðarmótum þar á eftir.
Börn með sérþarfir
Skólastjóri og umsjónarmaður Dægradvalar meta í samráði við foreldra hvort þörf sé á stuðningi við börn í Dægradvöl. Sé þörf á stuðningi sækir skólastjóri um stuðning til sérkennsluþjónustufulltrúa sem metur umsóknina.
Ef velferð barns krefst þess skal umsjónarmaður Dægradvalar fá upplýsingar frá skóla um barnið.
Starfsfólk
Í hverri Dægradvöl starfar umsjónarmaður sem ber ábyrgð á daglegu starfi. Gert er ráð fyrir u. þ. b. 15 börnum að jafnaði á hvern starfsmann í Dægradvölinni. Skólarnir ráða einnig yfir fjármagni til að ráða kennara til starfa við sérstök verkefni eins og t. d. íþróttir, myndlist, heimanám o. s. frv.
Húsnæði
Gert er ráð fyrir a. m. k tveimur heimastofum fyrir Dægradvöl. Ef börnin eru 90 eða fleiri þarf að gera ráð fyrir þremur heimastofum. Auk heima-stofanna nýtir Dægradvöl húsnæði skólanna eftir þörfum.
Starfsreglur samþykktar í skólanefnd 6. 12. 2004.
Breytingar á gjaldskrá tók gildi 1. janúar 2005.
Gjaldskrá staðfest óbreytt í skólanefnd 26. nóvember 2007.
Bæjarráð samþykkti hækkun gjaldskrár frá og með 1. jan. 2011.
Samþykkt í skólanefnd 31. janúar 2011.
