Daggæsla

Daggæsla

Daggæsla barna í heimahúsum

Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar en Menntasvið Kópavogs hefur umsjón og eftirlit með starfsemi þeirra og ráðgjöf við dagforeldra og foreldra. Allir sem fá starfsleyfi til daggæslu í heimahúsum þurfa að uppfylla skilyrði sbr. reglugerð nr. 907/2005.  

Að velja dagforeldra

Þegar verið er að velja dagforeldra er ráðlagt að foreldri kynni sér vel þá þjónustu sem í boði er og kanni allar aðstæður á heimilinu sem nýttar eru til starfsins, t.d. leikaðstöðu bæði úti og inni, hvíldar­aðstöðu og leikfangakost.Mælt er með að foreldrar kynni sér starfsemi og aðstæður hjá fleiri en einu dagforeldri og velji síðan þann aðila sem þeim líst best á. Ráðlagt er að gera skriflegan samning milli foreldra og dag­foreldra um dvalartíma barns og gjald fyrir dvölina. Bent er á að ákvörðun um vistun barns er ætíð á ábyrgð foreldra.

Ráðgjöf í daggæslu

Ráðgjöf í daggæslunni felst annars vegar í fræðslu og ráðgjöf til dagforeldra og hins vegar í leiðbeiningum og upplýsingum til foreldra. Ráðgjöf og stuðningur til dagforeldra er í formi reglulegra heimsókna tvisvar sinnum á ári. Einnig hafa dagforeldrar greiðan aðgang að daggæsluráðgjafi með viðtölum og símtölum.

Leikfangasafn

Leikfangasafn er fyrir börn hjá dagforeldrum og er undir umsjón ráðgjafa Menntasviðs. Leikfangasafnið lánar út valin leikföng til dagforeldra og er þeim veitt ráðgjöf og leiðbeiningar um val á leikföngum sem hæfa þroska og þörfum þeirra barna sem hjá þeim dvelja.

Leikfangasafnið er starfrækt að Digranesveg 10 og er opið einu sinni í viku á fimmtudögum. Hægt er að panta tíma hjá ráðgjafa í síma 570-1500.

Eftirlit með daggæslunni

Eftirlit er í höndum dagforeldra, foreldra og sérstaks eftirlitsaðila Menntasviðs. Eftirlitsaðili er Guðlaug Helga Hálfdanardóttir. Eftirlitið er þríþætt:

Innra eftirlit

Dagforeldrar skila innskráningarblöðum til daggæsluráðgjafa um þau börn sem eru að byrja og þau börn sem eru að hætta í daggæslu. Daggæsluráðgjafi skráir það í kerfið og eftirlitsaðili notar þá skilagrein við ytra eftirlit.

Ytra eftirlit

Sérstakur eftirlitsaðili fer þrisvar sinnum á ári í óboðaðar heimsóknir á heimili dagforeldris og kannar aðstæður hverju sinni.

Upplýsingar frá foreldrum

Aflað er upplýsinga einu sinni á ári með formlegum hætti hjá foreldrum um viðhorf þeirra til daggæslunnar hjá dagforeldri.

Sérstök athygli er vakin á því að þrátt fyrir allt hafa foreldrar bestu aðstöðuna til að fylgjast með starfsemi dagforeldra þar sem þeir eru í daglegu sambandi við þá.