Gæsluleikvellir

Gæsluleikvellir

Gæsluleikvellir Í Kópavogi

Leikvellirnir eru opnir allt árið og eru ætlaðir börnum á aldrinum 20 mánaða til 6 ára. Börnum sem eru eldri en 6 ára er heimilt að sækja vellina í samráði við starfsfólk. Markmið með þjónustu gæsluleikvallanna er að bjóða börnum upp á öruggt útileiksvæði þar sem möguleikar eru til frjálsra leikja í umsjá þjálfaðra starfsmanna.

Opnunartími

Sumartími gæsluvallanna er frá 16.mars – 31.ágúst.
Opið er frá kl. 10:00 – 12:00 og 13:30 – 16:30.

Vetrartími gæsluvallanna er frá 1. september – 15. mars.
Opið er frá kl. 13:00 – 16:00.

Gjald fyrir hverja komu er kr 100. Hægt er að kaupa kort með 20 miðum. Kortið kostar kr. 1.500.

Eftirtaldir gæsluvellir eru starfræktir yfir sumarið:
Holtsvöllur við Borgarholtsbraut, sími: 848-4430
Hjallavöllur við Efstahjalla, sími: 848-4455 (frá 1/6-31/8)
Lækjarvöllur við Dalsmára, sími: 848-4453
Hvammsvöllur v/ Hvammsveg, sími: 848-8521 (frá 1/6-31/8)

Holtsvöllur og Lækjarvöllur eru opnir yfir veturinn.

Nánari upplýsingar veitir Emilía Júlíusdóttir, yfirmaður daggæsludeildar, í síma
570-1500

Bæklingur um gæsluleikvelli Kópavogs





Þetta vefsvæði byggir á Eplica