Forvarnir

Forvarnir

Meginverkefni forvarnarstarfs bæjarins er að stuðla að víðtækum forvörnum fyrir börn frá fæðingu til 18 ára aldurs. Unnið er í samstarfi við alla þá sem koma að málefnum barna og unglinga í bæjarfélaginu, t.d. skóla, íþróttafélaga, félagsmiðstöðva og kirkja.

Forvarnarmál eru mjög víðtæk en meginmarkmið þeirra er að tryggja heilbrigt og uppbyggilegt umhverfi fyrir börn og unglinga bæjarins með virkni og samvinnu sem flestra í Kópavogi.

Forvarnarverkefni hjá Kópavogsbæ, önnur samstarfsverkefni og tilkynningar: Forvarnastefna Kópavogs

Kópavogsbær á aðild að Saman hópnum sem er samstarfsvettvangur ýmissa stofnana á vegum ríkis og bæjarfélaga og frjálsra félagasamtaka á sviði forvarna.

Ýmsar rannsóknir um stöðu forvarna á Íslandi er að finna á heimasíðu Rannsókna og greininga http://www.rannsoknir.is/