Dægradvöl/Gæsla eftir skóla

Dægradvöl/Gæsla eftir skóla

Dægradvöl starfar við alla grunnskóla bæjarins og stendur til boða fyrir öll börn í 1. - 4. bekk. Dægradvöl er frjálst tilboð þar sem börn dvelja við leik og skapandi starf í umsjá starfsfólks eftir að skóla lýkur. Börnin eru skráð inn í Dægradvöl og fylgst vel með hvar þau eru að leik og starfi uns þau eru skráð út við brottför.

Opnunartími
Opnunar- og gjaldtökutími Dægradvalar er frá því að skóladegi barnanna lýkur (um kl. 13:20) til kl. 17:15. Dægradvöl er opin alla daga sem grunnskólar starfa og einnig allan daginn á starfsdögum kennara á skólatíma. Dægradvöl er ekki opin í vetrarfríum skólanna. Starfsemi Dægradvalar hefst á skólasetningardegi og lýkur á skólaslitadegi.

Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um vist í Dægradvöl fást hjá viðkomandi skólum.

Gjald
Samræmt gjald er fyrir vist í Dægradvöl í Kópavogi. Gjaldflokkarnir eru fjórir og miðast þeir við eina, tvær, þrjár eða fjórar klst. á dag.

Verðskrá frá 1.jan 2012 Verðskrá til 31.des 2011 Verðbreyting  
  Per stund Samtals Per stund Samtals Per stund Samtals Samtals %
Allt að 20 klst á mán 6.300 6.300 6.000 6.000 300 300 5,0%
21-40 klst á mán 4.725 11.025 4.500 10.500 225 525 5,0%
41-60 klst á mán 3.675 14.700 3.500 14.000 175 700 5,0%
61-80 klst á mán 2.625 17.325 2.500 16.500 125 825 5,0%
Matargjald   125   125   0 0,0%


Systkinaafsláttur er 50% af grunngjaldi, eða 3.000 kr., fyrir annað og 75%, eða 4.500 kr., fyrir þriðja systkini. Systkinaafsláttur tekur einnig til yngri systkina sem eru í leikskóla eða í vistun hjá dagforeldrum.

Greiðslur og innheimta 
Dvalar- og matargjöld fyrir Dægradvöl skulu greiðast í lok hvers mánaðar. Sé skuld ekki greidd ber skólastjóra að senda áminningarbréf  þann 15. næsta mánaðar og segja plássinu upp frá og með næstu mánaðarmótum. Innheimtudeild Kópavogs sér um innheimtu.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica