Frístund fyrir fatlaða nemendur

Frístund fyrir fatlaða nemendur

Frístund er fyrir fatlaða nemendur í 5. til 10. bekk við grunnskóla Kópavogs sem eiga lögheimili í Kópavogi.

Í Frístund gefst börnunum tækifæri til að dvelja við leik og skapandi störf eftir að skólastarfi lýkur. Frístund fellur  undir lög um málefni fatlaðra.

Frístund hefst í lok skóladags og lýkur kl. 17:00 alla virka daga. Opið er í vetrarfríum grunnskólanna frá 8:00 til 17:00 og á starfsdögum. Yfir sumartímann er boðið upp á fimm vikna námskeið í Sumarfrístund frá 8:00 til 16:00 virka daga.

Frístund er til húsa í frístundastofum við Smáraskóla, Dalsmára 1. Boðið er upp á akstur frá heimaskóla barnanna í Frístund.

Markmið Frístundar er að veita börnum sem þar dvelja öruggt athvarf og bjóða þeim upp á skipulagðar tómstundir við hæfi hvers og eins.  Leiðarljós starfseminnar eru fagleg vinnubrögð, foreldrasamstarf og virðing fyrir einstklingunum, aðstandendum þeirra og öðru starfsfólki.

Forstöðumaður Frístundar er Amanda Karima Ólafsdóttir og  veitir hún nánari upplýsingar í síma 897-0013 eða á netfanginu amanda.olafsdottir (hjá) kopavogur.is





Þetta vefsvæði byggir á Eplica