Inrritun í skóla - flutningur milli skóla

Innritun í skóla - flutningur milli skóla

Innritun 6 ára barna fer fram í grunnskólunum í mars ár hvert. Innritunin er auglýst í bæjarblöðunum, á heimasíðu Kópavogs og á heimasíðum skólanna. Skólarnir og grunnskóladeild menntasviðs fylgjast með að öll 6 ára börn innritist í skóla.

Skólahverfi

Hver grunnskóli hefur sitt afmarkaða skólahverfi og er því heimaskóli þeirra nemenda sem búa í hverfinu.

Óskir um flutning milli skólahverfa

Hver grunnskóli tilheyrir ákveðnu skólahverfi. Foreldrar geta sótt um skólavist fyrir börn sín í öðru skólahverfi til viðkomandi skóla.

Skólavist í öðrum sveitarfélögum

Ef foreldrar óska eftir að börn þeirra sæki skóla í öðru sveitarfélagi en það á lögheimili í, þurfa þeir að sækja um það á sérstöku eyðublaði sem hægt er að nálgast á Rafrænum Kópavogi. Sama gildir ef sækja á um einkarekna skóla.

Málefni nýbúa

Nýbúar eiga rétt á sérstakri íslenskukennslu í sínum hverfisskóla. Auk þess starfrækir Kópavogsbær móttökudeild fyrir nýbúa í Álfhólsskóla. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans.

Gæsla eftir skóla

Dægradvöl starfar við alla grunnskóla bæjarins og stendur til boða fyrir öll börn í 1. - 4. bekk. Dægradvöl er frjálst tilboð þar sem börn dvelja við leik og skapandi starf í umsjá starfsfólks eftir að skóla lýkur. Sjá nánar upplýsingar um Dægradvöl hér.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica