Sérfræðiþjónusta

Sérfræðiþjónusta

Sérfræðiþjónusta er veitt í öllum grunnskólum Kópavogs í samræmi við lög um grunnskóla og reglugerð um sérfræðiþjónustu. 

Á grunnskóladeild menntasviðs starfa kennslufræðingar sem veita starfsfólki skóla, nemendum og foreldrum ráðgjöf og stuðning við úrlausn mála sem upp koma í skólastarfi.

Í skólunum starfa einnig sálfræðingar, námsráðgjafar og iðjuþjálfi, sem annast greiningar og ráðgjöf á sinu sérsviði. Talkennsla fer fram í skólunum þar sem unnið er með leiðréttingar á ýmis konar talhömlun og málörvun.Tómas Jónsson, sérfræðiþjónustufulltrúi á menntasviði, hefur yfirumsjón með sérfræðiþjónustu grunnskólanna.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica