Stuðningur fyrir nemendur með sérþarfir

Stuðningur fyrir nemendur með sérþarfir

Í samræmi við lög um grunnskóla, ásamt reglugerð um nemendur með sérþarfir, stendur öllum nemendum sem búa í Kópavogi til boða að stunda nám í sínum heimaskóla, þar sem þeir eiga að fá nám við hæfi. 

Grunnskólar Kópavogs fá ákveðið kennslutímamagn og stöður stuðningsfulltrúa til þess að sinna nemendum.

Ef sérþarfir barns eru miklar og flóknar geta foreldrar sótt um skólavist fyrir barn sitt í sérskóla. Í Kópavogi eru einnig starfræktar sérdeildir, námsver og sérúrræði til þess að mæta mismunandi þörfum nemenda.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica